Sálmabók
637. Ó, Kristur minn kær
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Ó, Kristur minn kær,
þú kærleikans eilífi brunnurinn skær,
af líkn þinni afmá þú sekt mína' og synd
og svala mér þyrstum af miskunnar lind,
æ, betra mitt hjarta með blessaðri náð
svo bæti' eg mitt ráð.
2 Um lífdaga leið
mig leið þú og styð þú í gleði' og í neyð,
æ, veit mér að standast í stríðinu hér,
æ, styrk mig svo trúlega fylgi ég þér
uns ég þig í dýrðinni frelsaður finn,
ó, frelsari minn.
- TÞorsteinn Þorkelsson – Sb. 1886
- LLudvig M. Lindeman 1862 – JH 1906O kristelighed
- Eldra númer 197
- Eldra númer útskýring T