Sálmabók

638. Ó, Jesú, að mér snú

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Ó, Jesú, að mér snú
ásjónu þinni.
Sjá þú mig særðan nú
á sálu minni.

2 Þegar ég hrasa hér,
hvað mjög oft sannast,
bentu í miskunn mér
svo megi' eg við kannast.

3 Oft lít ég upp til þín
augum grátandi,
líttu því ljúft til mín
svo leysist vandi.

  • THallgrímur Pétursson Ps. 12
  • LNürnberg 1534 – Gr. 1607 – SÓ 2015
  • Tilvísun í annað lag
  • Eldra númer 309
  • Eldra númer útskýring T