Sálmabók

646. Helgunarklæðið hafði eg misst

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Helgunarklæðið hafði' eg misst,
hlaut því nakinn að standa.
Adam olli því allra fyrst,
arf lét mér þann til handa.
Syndanna flík ég færðist í,
forsmán og minnkun hlaust af því
með hvers kyns háska' og vanda.

2 Burt tók Jesús þá blygðun hér,
beran því lét sig pína.
Réttlætis klæðnað keypti mér,
kann sá fagurt að skína.
Athvarf mitt jafnan er til sanns
undir purpurakápu hans,
þar hyl ég misgjörð mína.

  • THallgrímur Pétursson Ps. 24
  • LCoverdale um 1535 – Magdeburg 1542 – Gr. 1594
    Van allen Minschen affgewandt
  • Eldra númer 198
  • Eldra númer útskýring T+L