Sálmabók
647. Ég kem í auðmýkt
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Ég kem í auðmýkt, Kristur hár,
og krýp sem barnið, smærri' en smár.
Ég þrái frið og þyrstur bið:
Ó, miskunna þú mér.
2 Ég þrái frið í þreytta sál.
Við þig að tala bænarmál
er himnesk lind í sorg og synd.
Ó, miskunna þú mér.
3 Þú þekkir allra sorg og sár.
Þú svölun veitir, þerrar tár.
Þú styrkir þá er stormar hrjá.
Ó, miskunna þú mér.
4 Ég trúi' á þig - ég treysti þér
og traustið huggun veitir mér.
Ég er svo smár, þinn himinn hár.
Ó, tak á móti mér.
- TEinar Sturlaugsson, 1932 – Vb. 1991
- LBjörgvin Guðmundsson, 1936 – Vb. 1946
- Eldra númer 552
- Eldra númer útskýring T+L