Sálmabók

649a. Hvað bindur vorn hug

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Hvað bindur vorn hug við heimsins glaum
sem himnaarf skulum taka?
Oss dreymir í leiðslu lífsins draum
en látumst þó allir vaka
og hryllir við dauðans dökkum straum
þó dauðinn oss megi' ei saka.

2 Til moldar oss vígði' hið mikla vald,
hvert mannslíf sem jörðin elur.
Sem hafsjór er rís með fald við fald
þau falla en Guð þau telur
því heiðloftið sjálft er huliðstjald
sem hæðanna dýrð oss felur.

3 En ástin er björt sem barnsins trú,
hún blikar í ljóssins geimi
og fjarlægð og nálægð, fyrr og nú,
oss finnst þar í eining streymi.
Frá heli til lífs hún byggir brú
og bindur oss öðrum heimi.

4 Af eilífðar ljósi bjarma ber
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri' en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.

  • TEinar Benediktsson 1900 – Vb. 1933
  • LChristoph E.F. Weyse 1826 – PG 1861
    Den signede dag med fryd vi ser
  • Sálmar með sama lagi
  • Tilvísun í annað lag
  • Eldra númer 418
  • Eldra númer útskýring T+L