Sálmabók

651b. Tíminn steðjar sem streymi á

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Tíminn steðjar sem streymi á,
strengir um kletta falla.
Undan mig rekur ofan hjá,
áralausan að kalla.

2 Með hverri stundu sú stríða röst
að stóra fossinum dregur.
Flúðir mér ógna og iðuköst,
enginn til bjargar vegur.

3 Hvern á ég vin með vilja og mátt
að vísa til marks og landa?
Þeir sogast fram á sama hátt
sjálfir í nauð og vanda.

4 Einn hefur vinurinn vald og gát
á voða og öllu grandi:
Jesús fær varið veikan bát
og vísað í höfn á landi.

5 Með hverri stundu sú stríða röst
að stóra fossinum sogar
en vinarins hönd er viss og föst,
vitinn á ströndu logar.

6 Tíminn steðjar sem streymi á.
Stýrum í Jesú nafni!
Þótt bátur sé smár og báran há,
þá brosir hans land fyrir stafni.

  • TFríðrikur Petersen 1892 – Sigurbjörn Einarsson – Sb. 1972
  • LJógvan Waagstein, 1946
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 415
  • Eldra númer útskýring T