Sálmabók

659. Herra, mig heiman bú

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Herra, mig heiman bú
í hendur þínar,
leið mig í lífsins trú
um lífstíð mína.

2 Allt hvað minn góði Guð
gaf mér í heimi
einn taki aftur við,
annist og geymi.

3 Ég á mig ekki hér
í veröldinni,
Drottinn, ég eign þín er
af miskunn þinni.

4 Höfuð mitt seka sé
sem kjöltu móður
lagt í þitt líknarkné,
lausnarinn góður.

  • THallgrímur Pétursson um 1674 – Sb. 1972
  • LNürnberg 1534 – Gr. 1607 – PG 1861
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 429
  • Eldra númer útskýring T+L