Sálmabók
662. Vor ævi stuttrar stundar
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Vor ævi stuttrar stundar
er stefnd til Drottins fundar
að heyra lífs og liðins dóm.
En mannsins sonar mildi
skal máttug standa' í gildi.
Hún boðast oss í engils róm.
2 Svo helgist hjartans varðar.
Ei hrynur tár til jarðar
í trú, að ekki talið sé.
Í aldastormsins straumi
og stundarbarnsins draumi
oss veita himnar vernd og hlé.
- TEinar Benediktsson, 1930 – Sb. 1945Dánarstef
- LBjörgvin Guðmundsson – Vb. 1946
- Eldra númer 422
- Eldra númer útskýring T