Sálmabók

674. Hvar er nú, Guð, þín hjálparhönd

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Hvar er nú, Guð, þín hjálparhönd?
Hve hörð er gata mín!
Ég finn mig reyrðan fast í bönd
og forðast brauð og vín.
Ég villist einn um eyðilönd
en er að leita þín.

2 Úr myrkri dauðans hug minn hríf
svo hjartað öðlist sýn.
Lát veika trú mér verða hlíf
uns villuljósið dvín.
Ó, vektu hjá mér von um líf
og veginn heim til þín!

3 Af tákni krossins til mín inn
er töfrabirta skín
og laðar hálfan huga minn
af heimsins leið til þín,
mig frelsi orð og andi þinn,
hið eina brauð og vín.

  • THjörtur Pálsson 2002 – Vb. 2013
  • LPhiladelphia um 1812
    CONSOLATION / MORNING SONG
  • Eldra númer 922
  • Eldra númer útskýring T