Sálmabók
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Ó, undur lífs, er á um skeið
að auðnast þeim sem dauðans beið -
að finna gróa gras við il
og gleði' í hjarta vera til.
Hve björt og óvænt skuggaskil!
2 Ei sá ég fyrr þau skil svo skýr.
Mér skilst hve lífsins gjöf er dýr
- að mega fagna fleygri tíð
við fuglasöng í morgunhlíð
og tíbrá ljóss um loftin víð.
3 Og gamaltroðna gatan mín
í geislaljóma nýjum skín.
Ég lýt að blómi' í lágum reit
og les þar tákn og fyrirheit
þess dags er ekkert auga leit.
4 Ég svara, Drottinn, þökk sé þér!
Af þínu ljósi skugginn er
vor veröld öll, vort verk, vor þrá
að vinna þér til lofs sem má
þá stund er fögur hverfur hjá.
- TÞorsteinn Valdimarsson, 1966 – Sb. 1972
- LJakob Hallgrímsson 1983 – Sb. 1997
- Eldra númer 410b
- Eldra númer útskýring T+L