Sálmabók
679. Sú von er sterk
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Sú von er sterk, hún verður eigi slökkt,
að vorið komi þó að geisi hríð.
Eins sigrar Drottinn alla ógn og stríð.
2 Og þó að dauðinn hremmi hart og snöggt
er hönd að baki, mild og trú og góð,
hún leiðir fram til ljóss um myrka slóð.
3 Þótt lán sé brothætt, lífið valt og stökkt,
er líkn í hverri raun og tári manns
því þar er Kristur, kross og páskar hans.
4 Og þegar hylur húmið svalt og dökkt
þinn heim og salta döggin vætir kinn
þá kemur hann og færir friðinn sinn.
5 Sú von er sönn, hún verður aldrei slökkt,
hún vekur þína sál við hinsta ós,
að Kristur breytir öllu’ í eilíft ljós.
- TSigurbjörn Einarsson 1965 – Vb. 2013
- LÞorkell Sigurbjörnsson 2006 – Vb. 2013
- Eldra númer 919
- Eldra númer útskýring T