Sálmabók

67a. Fögur er foldin

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Fögur er foldin,
heiður er Guðs himinn,
indæl pílagríms ævigöng.
Fram, fram um víða
veröld og gistum
í Paradís með sigursöng.

2 Kynslóðir koma,
kynslóðir fara
allar sömu ævigöng.
Gleymist þó aldrei
eilífa lagið
við pílagrímsins gleðisöng.

3 Fjárhirðum fluttu
fyrst þann söng Guðs englar,
unaðssöng er aldrei þver:
Friður á foldu,
fagna þú, maður,
frelsari heimsins fæddur er.

  • TBernhard S. Ingemann 1850 – Matthías Jochumsson, 1917 – Sb. 1945
    Dejlig er jorden
  • LÞjóðlag frá Slésíu – Breslau 1842 – JH 1885
    Schönster Herr Jesu
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 96
  • Eldra númer útskýring T+L
  • Biblíutilvísun Lúk. 2.8–14