Sálmabók

684. Öll mín leit er svo löng

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Öll mín leit er svo löng,
allt mitt líf, jafnvel röng,
en nú bið ég:
Ó, leið mig uns þú líknar mér, Guð.

2 Aldrei skilið fæ þig,
þig sem skilur samt mig,
því ég hrópa:
Ó, leið mig uns þú líknar mér, Guð.

3 Allar sorgir og sár
fá mér sýnir og þrár,
hljótt ég hvísla:
Ó, leið mig uns þú líknar mér, Guð.

4 Öll mín löngun, mín leið,
öll mín leit, öll mín neyð,
ljá mér nýtt líf:
Ó, leið mig uns þú líknar mér, Guð.

  • TAnna-Mari Kaskinen 1986 – Per Harling 1996 – Sigurður Ingólfsson 2016
    Kaukaa sinua hain / Håll om mig (Håll fast vid meg)
  • LJaakko Löytty 1986
    Kaukaa sinua hain / Håll om mig (Håll fast vid meg)