Sálmabók
691. Þú einn í ljós er leiddir
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Þú einn í ljós er leiddir
það líf er aldrei dvín
og sjálfan dauðann deyddir,
ó, Drottinn minn, til þín
ég leita lífs í mæðum
því líf og sál er þreytt,
æ, send mér hjálp af hæðum
er huggun fái veitt.
2 Þitt lífsins ljósið bjarta,
æ, lát þú, Drottinn minn,
í mínum hug og hjarta
æ hafa bústað sinn,
á friðar leið það lýsi
um lífsins sporin myrk
og réttan veg mér vísi
með von og trúarstyrk.
- TÞorsteinn Þorkelsson – Sb. 1886
- LSænskt þjóðlag
- Tilvísun í annað lag
- Eldra númer 408
- Eldra númer útskýring T