Sálmabók
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
Vér treystum því sem hönd Guðs hefur skráð:
Í hverju fræi' er var í kærleik sáð
býr fyrirheit um himnaríki' á jörðu.
Hver heilög bæn á vísa Drottins náð.
Og hví skal þá ei ógn og hatri hafna
ef hjálp og miskunn blasir öllum við
í trú sem ein má þúsund þjóðum safna
til þjónustu við sannleik, ást og frið?
- TTómas Guðmundsson – Sb. 1972
- LBenny Andersson 1999 – Vb. 2013Så kom du då till sist / Innan gryningen
- Sálmar með sama lagi
- Eldra númer 304
- Eldra númer útskýring T