Sálmabók

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Héti ég María,
hefði barn armi á,
neyddist til að flýja
nauð og stríð, lands míns vá,
fyndir þú mér friðsælt skjól?

2 Brynnu mér að baki
brýrnar heim, minni' á ferð,
voða' og vopnabraki
vígslóð frá, grimmri mergð,
fyndir þú mér friðsælt skjól?

3 Féllu' á sprengjur fláar
fagra sveit, sem ég veit,
hittu fyrir hús mitt,
heimafólk, dýr á beit,
fyndir þú mér friðsælt skjól?

4 Hyrfi' um nótt í hafið
hriplekur báturinn,
yrði' úr öldum dreginn
aðeins ég, grátur minn,
fyndir þú mér friðsælt skjól?

5 Langförul ég legði
land við fót, norðurgrjót
og þér sögu segði
sára um meinin ljót,
fyndir þú mér friðsælt skjól?

6 Héti ég María,
hefði barn armi á,
ef hann héti Jesús ...

  • TJohn L. Bell 2015 – Sigríður Guðmarsdóttir 2016
    If my name was Mary
  • LJohn L. Bell 2015
    IF / If My Name Was Mary