Sálmabók
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Kristur færði fórnir
fyrir alla jafnt.
Áfram uppi veður
óréttlætið samt.
Þungar raunir þjaka
þjáða, særða menn.
Reikistjarnan stynur
undan stríðsátökum enn.
Fram í kærleiks krafti!
Kjósum nýja leið.
Efld af andans mætti
alla sigrum neyð.
2 Oss í brjósti brennur
baráttunnar glóð.
Kristur elskar alla
óháð kyni' og þjóð.
Sýnum að við erum
elskuð Drottins hjörð,
að við berum elsku
hvert til annars hér á jörð.
Fram í kærleiks krafti!
Kjósum nýja leið.
Efld af andans mætti
alla sigrum neyð.
- TDavíð Þór Jónsson 2015
- LArthur S. Sullivan 1872 – Vb. 1946ST. GERTRUDE / Onward! Christian Soldiers