Sálmabók

719b. Á hendur fel þú honum

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Á hendur fel þú honum,
sem himna stýrir borg,
það allt er áttu' í vonum
og allt er veldur sorg.
Hann bylgjur getur bundið
og bugað storma her,
hann fótstig getur fundið
sem fær sé handa þér.

2 Ef vel þú vilt þér líði
þín von á Guð sé fest.
Hann styrkir þig í stríði
og stjórnar öllu best.
Að sýta sárt og kvíða
á sjálfan þig er hrís.
Nei, þú skalt biðja' og bíða,
þá blessun Guðs er vís.

3 Ó, þú, minn faðir, þekkir
og það í miskunn sér
sem hagsæld minni hnekkir
og hvað mér gagnlegt er
og ráð þitt hæsta hlýtur
að hafa framgang sinn
því allt þér einum lýtur
og eflir vilja þinn.

4 Þig vantar hvergi vegi,
þig vantar aldrei mátt,
þín bjargráð bregðast eigi
til bóta' á einhvern hátt.
Þitt starf ei nemur staðar,
þín stöðvar enginn spor,
af himni' er þú þér hraðar
með hjálp og líkn til vor.

5 Mín sál, því örugg sértu
og set á Guð þitt traust.
Hann man þig, vís þess vertu,
og verndar efalaust.
Hann mun þig miskunn krýna.
Þú mæðist litla hríð.
Þér innan skamms mun skína
úr skýjum sólin blíð.

  • TPaul Gerhardt 1653 – Stener J. Stenersen 1826 – Björn Halldórsson – Sb. 1886
    Befiehl du deine wege
  • LSigvaldi Kaldalóns – Ssb. 1936
    Ég kveiki á kertum mínum (Á föstudaginn langa)
  • Eldra númer 38b
  • Eldra númer útskýring T+L