Sálmabók

729c. Láttu Guðs hönd þig leiða hér

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Láttu Guðs hönd þig leiða hér,
lífsreglu halt þá bestu,
blessuð hans orð sem boðast þér
í brjósti' og hjarta festu.

2 Hrittu ei frá þér Herrans hönd,
hún þó þig tyfta vildi,
legg heldur bæði líf og önd
ljúflega' á Drottins mildi.

3 Hér þegar mannleg hjálpin dvín,
holdið þó kveini' og sýti,
upp á hönd Drottins augun þín
ætíð með trúnni líti.

4 Að morgni' og kvöldi minnst þess vel,
máls upptekt láttu þína:
Af hjarta' eg þér á hendur fel,
Herra Guð, sálu mína.

5 Svo máttu vera viss upp á,
vilji þér dauðinn granda,
sála þín mætir miskunn þá
millum Guðs föður handa.

  • THallgrímur Pétursson Ps. 44
  • LHalldór Hauksson 2015
  • Eldra númer 376
  • Eldra númer útskýring T