Sálmabók

731. Faðir vor, þín eilíf elska vakir

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Faðir vor, þín eilíf elska vakir
yfir hverju spori barna þinna.
Lát þú oss sem leitum þín og biðjum
ljós þíns orðs og návist þína finna.

2 Kristur segir: Komið til mín allir,
kærleiksandi minn er þín að leita
til að helga annir, raun og yndi,
innri gleði, styrk og frið að veita.

3 Lof sé þér sem lífið átt og gefur,
lindin alls hins góða, fagra, bjarta,
einn þú ræður allt sem huga dreymir,
alla dul og von í mannsins hjarta.

  • TSigurbjörn Einarsson 1985 – Vb. 1991
  • LÞorkell Sigurbjörnsson 1985 – Vb. 1991
  • Eldra númer 590
  • Eldra númer útskýring T+L