Sálmabók

732. Mitt líf er eins og lag

Í söng ég verð að hljóma

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Mitt líf er eins og lag sem nær
að lyfta sér í hæðir
og tekur mið af tærri lind
er tóna nýja fæðir.

Ef stormur æðir stend ég kyrr
með styrk af dýrðarljóma
og sál mín finnur sína rödd.
Í söng ég verð að hljóma.

2 Þótt sannleikann menn sitji um
hann sífellt áfram lifir
og marga sálma man ég best
er myrkur grúfir yfir.

Ef stormur æðir stend ég kyrr
með styrk af dýrðarljóma
og sé Guðs kærleik sigra allt.
Í söng ég verð að hljóma.

  • TRobert Lowry, 1869 – Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson 2001
    My Life Flows on in Endless Song
  • LRobert Lowry, 1869
    HOW CAN I KEEP FROM SINGING