Sálmabók
742. Eins og hind leitar heiðarlinda
1 Eins og hind leitar heiðarlinda
þráir hjartað frið við þig,
Guð, mér hlíf þú í heimi vinda,
þú sem hefur skapað mig.
Ævin líður svo undrafljótt
sem elding leiftri á himni skjótt.
Okkar lifandi lind ert þú,
við lútum þér í von og trú.
2 Orð þín, Kristur, um eilífð standa
og án enda' er miskunn þín
en í heilsulind heilags anda
laugast haldin augu mín.
Ævin líður ...
3 Guð sem fögnuði' og frelsi heitir
þeim er fagna boðskap hans,
sínu lifandi vatni veitir
hann úr veröld kærleikans.
Ævin líður ...
- TMartin Nystrom 1983 – Hjörtur Pálsson 2017As the deer panteth for the water
- LMartin Nystrom 1983AS THE DEER (Nystrom)
- Sálmar með sama lagi