Sálmabók
765. Nú strýkur vorið völl og dal
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Nú strýkur vorið völl og dal
svo vökna brár í fjallasal.
Nú lifna grös um laut og börð,
sjálft lífið vekur freðna jörð.
2 Heyr farfuglanna kvæðaklið
er kría, tjaldur bregða við,
með gleðiraust og söngvaseim
úr suðurlöndum snúa heim.
3 Sú fagra fuglaparadís,
hún flytur Guði lof og prís
og syngur ljóð um líf og vor
svo léttir yfir hverri skor.
4 Og fagna má sem fugl í söng
við ferðalok í jarðarþröng
sá er þú leiddir langan veg.
Ó, lífsins Guð, þig tigna ég.
- TTummas N. Djurhuus 1971 – Kristján Valur Ingólfsson 2010 – Vb. 2013Nú strýkur vár um heimlandsvøll
- LKnút Olsen 1978 – Vb. 2013Nú strýkur vár um heimlandsvøll
- Eldra númer 946
- Eldra númer útskýring T+L