Sálmabók
766a. Nú skrúða grænum skrýðist fold
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Nú skrúða grænum skrýðist fold
og skæru augun ljóma
er fagna blómin frelsi' úr mold
og frosts og vetrar dróma.
Nú barnaraddir blíðar tjá
að birtan sigrað hefur
og allt í náð umvefur.
2 Í laufi fuglinn, lamb í hjörð
og lóa frjáls í heiði
þá lofgjörð inna lífs sem jörð
á löngum vetri þreyði.
Af gleði óma götur, torg
og gleði birtir sanna
öll önn og iðja manna.
3 Þú Guð, sem sumar gefur jörð
og gleði barna þinna,
gef allri þinni eignarhjörð
þá elsku' og gleði' að finna
og lúta þér í lotning, trú,
að lífi öllu hlúa,
sem systkin saman búa.
- TCarl D. af Wirsén 1889 – Karl Sigurbjörnsson 1990 – Sb. 1997Sommarpsalm (En vänlig grönskas rika dräkt)
- LWaldemar Åhlén 1933 – Sb. 1997Sommarpsalm (En vänlig grönskas rika dräkt)
- Sálmar með sama lagi
- Eldra númer 719
- Eldra númer útskýring T+L