Sálmabók

770. Ó, blessuð vertu sumarsól

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Ó, blessuð vertu sumarsól
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.
Nú fossar, lækir, unnir, ár
sér una við þitt gyllta hár.
Nú fellur heitur haddur þinn
um hvíta jökulkinn.

2 Þú klæðir allt í gull og glans,
þú glæðir allar vonir manns
og hvar sem tárin kvika' á kinn
þau kyssir geislinn þinn.
Þú fyllir dalinn fuglasöng,
nú finnast ekki dægrin löng
og heim í sveitir sendirðu' æ
úr suðri hlýjan blæ.

3 Þú frjóvgar, gleður, fæðir allt
um fjöll og dali' og klæðir allt
og gangirðu' undir gerist kalt,
þá grætur þig líka allt.
Ó, blessuð vertu sumarsól
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.

  • TPáll Ólafsson 1875
    Sumarkveðja
  • LIngi T. Lárusson, 1915