Sálmabók

777. Sólin signir hafið

Ákall

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Sólin signir hafið,
sindrar bárutrafið.
Sköpun lofar háan Herra sinn.
Sælt er mér á sævi,
sigli mína ævi.
Guði þakka góðan afla minn.

2 Allt er í hans hendi,
ákall honum sendi:
Bið að gæti bátsins Drottinn minn.
Æ þú ert mér nærri,
öllum mætti hærri,
veit mér, Drottinn, vernd í hvert eitt sinn.

3 Þá ég sný af sævi
sjómanns finnst mér ævi
sælli því sem ég á foldu finn.
Jafnt í brimi' og blíðu
báts þá stend við síðu,
haf mig þér í hendi, Drottinn minn.

  • THaukur Ágústsson 2013
  • LHaukur Ágústsson 2013