Sálmabók
782b. Frelsarinn Jesús fyrir sér
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Frelsarinn Jesús fyrir sér
þá fall og hrösun er búin mér.
Hann veit og líka lækning þá
sem leysa kann mig sorgum frá.
2 Sú von er bæði völt og myrk
að voga freklega’ á holdsins styrk.
Án Guðs náðar er allt vort traust
óstöðugt, veikt og hjálparlaust.
3 Gef mér, Jesú, að gá að því
glaskeri ber ég minn fésjóð í.
Viðvörun þína virði' eg mest,
veikleika holdsins sér þú best.
- THallgrímur Pétursson Ps. 1
- LÍslenskt þjóðlag – SÓ 2015Wenn wir in höchsten Nöthen sein (íslensk breyting)
- Eldra númer 492
- Eldra númer útskýring T