Sálmabók
783b. Ó, Drottinn, virstu að mér gá
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Ó, Drottinn, virstu að mér gá.
Ó, Drottinn, leið mig til og frá.
Hönd þín mig verndi hvar ég fer,
háskanum vísi burt frá mér.
Ó, Drottinn, skildu ei við mig.
Einkaförunaut kýs ég þig.
2 Ó, Drottinn, geym mitt megn og mál,
minn líkamskraft og veika sál,
húsið líka og heimkynnið,
holla vini sem skilst ég við.
Gættu þeirra og gef mér þá
glaða og heila aftur sjá.
- TSigurður Jónsson í Presthólum – Sb. 1671
- LStefán Arason 2020
- Eldra númer 494
- Eldra númer útskýring T