Sálmabók
790. Guð sem í árdaga
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Guð sem í árdaga oss reisti bústað á jörðu
kallaði ljósið frá myrkri, landið úr sævi,
skapaði Ísland með eldi.
2 Þjóð vor hin íslenska alin hjá Þingvallabergi
valdi sér leiðsögn í Kristi, kölluð af honum,
þáði hans líf sér til lausnar.
3 Guðs andi heilagi, heyr þú er kirkja þín biður:
Kom þú í Orði og mætti, endurnær börn þín,
umskapa lýð þinn sem landið.
- TKristján Valur Ingólfsson 2000 – Vb. 2013
- LHörður Áskelsson 2000 – Vb. 2013
- Eldra númer 950
- Eldra númer útskýring T+L