Sálmabók

792. Beyg kné þín

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Beyg kné þín, fólk vors föðurlands,
þinn fjötur Drottinn leysti.
Krjúp fram í dag á fótskör hans
sem fallið kyn vort reisti.
Þá háskinn stóð sem hæst
var hjálp og miskunn næst,
oss þjáðu þúsund bönd
en þá kom Drottins hönd
og lét oss lífi halda.

2 Ó, Guð, þín miskunn meiri er
en megi sál vor skilja.
Hvert ljós sem kemur, lýsir, fer,
oss les þau orð þíns vilja:
Lær sanna tign þín sjálfs,
ver sjálfur hreinn og frjáls,
þá skapast frelsið fyrst
og fyrir Jesúm Krist
skal dauðans fjötur falla.

  • TMatthías Jochumsson 1880 – Sb. 1945
  • LMartin Luther, 1529 – Klug 1533 – Gr. 1594
    Ein feste Burg ist unser Gott
  • Eldra númer 521
  • Eldra númer útskýring T+L