Sálmabók
795. Gefðu að móðurmálið mitt
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
Gefðu að móðurmálið mitt,
minn Jesú, þess ég beiði,
frá allri villu klárt og kvitt
krossins orð þitt út breiði
um landið hér
til heiðurs þér,
helst mun það blessun valda
meðan þín náð
lætur vort láð
lýði og byggðum halda.
- THallgrímur Pétursson Ps. 35
- LStrassburg 1525 – Thomissøn 1569 – Sb. 1589 – Sb. 1972 / R Róbert A. Ottósson, 1967Mein Seel erherbt den Herren
- Eldra númer 532
- Eldra númer útskýring T+L