Sálmabók

81. Vér týnum oft Jesú í heimi hér

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Vér týnum oft Jesú í heimi hér
í hávaða lífs og glaumi,
vér leitum hans þar sem ei hann er
og oftlega' í leiðslu' og draumi.
Vér hyggjum hann fjær þá hann er nær
og hrekjumst af tímans straumi.

2 Vér leitum að Jesú en hann er hér
í húsi síns föður kæra.
Í helgidóm bent oss hingað er
með hljóminum klukkna skæra.
Hér lýsir hans orð, hans blessað borð
hér blessun oss hefur að færa.

3 Vort hjarta sé musteri heilagt það
er Herrann í bústað eigi
og hvenær sem leitum honum að
þar hann ætíð finna megi
svo viskan og náð þar verði sáð
er vaxi með hverjum degi.

  • TValdimar Briem – Sb. 1886
  • LChristian Fugl um 1860
    Jeg vet meg en søvn i Jesu navn
  • Sálmar með sama lagi
  • Tilvísun í annað lag
  • Eldra númer 112
  • Eldra númer útskýring T
  • Biblíutilvísun Lúk. 2.41–49