Sálmabók
86. Þitt heilagt himinsáð
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Þitt heilagt himinsáð
um heimsins akur stráð,
það ljóss og lífs orð góða
sem líf og heill er þjóða
á erfitt upp að spretta
hjá illgresinu þétta.
2 Ó, Guð, hve grátlegt er
á góðu lítið ber
en illt er oft hvað tíðast,
á akri kirkju víðast
nú þyrnar þéttir standa
og þínu hveiti granda.
3 Ó, gef það, Guð, af náð
að guðlegt orðasáð
er sífellt sá þú lætur
í sálum festi rætur.
Lát ávöxt af því spretta
til eilífs lífs, hinn rétta.
- TThomas Kingo 1689 – Nikolaj F.S. Grundtvig 1837 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886Ó, Guð, hve grátlegt er
- LJacob Regnart 1574 – Vulpius 1609 – Schein 1627 – Sb. 1619Auf meinen lieben Gott
- Biblíutilvísun Matt. 13.3–8