Mynd sem tengist textanum
Auglýst eftir framboðum til kirkjuþings
23.02.2026

Senn líður að kosningu til kirkjuþings 2026 - 2030. Á kirkjuþingi sitja 29 fulltrúar, 17 leikmenn og 12 vígðir þjónar. Nánar má lesa um kjördæmi kirkjuþings, kirkjuþingsfulltrúa og fleira á vef kirkjuþings kirkjuthing.kirkjan.is.

Nú er komið að því að velja þessa fulltrúa til næstu fjögurra ára, þ.e. 2026 - 2030. Þau sem hyggjast bjóða sig fram til kirkjuþings skulu tilkynna kjörstjórn framboð sitt skriflega, eigi síðar en 15. mars 2026.

Kosningarnar verða rafrænar og er miðað við að þær standi frá kl. 12:00 fimmtudaginn 7. maí 2026 til kl. 12:00 þriðjudaginn 12. maí sama ár. Kosningarnar verða nánar auglýstar síðar.

Af þessu tilefni hefur kjörstjórn birt eftirfarandi auglýsingu:

Á grundvelli 11. gr. starfsreglna um kjör til kirkjuþings, nr. 8/2021-2022 auglýsir kjörstjórn þjóðkirkjunnar eftir framboðum til kirkjuþings.

Á kirkjuþingi eiga sæti 29 þjóðkirkjumenn kjörnir til fjögurra ára í senn. Eru 12 þeirra úr hópi vígðra manna, þ.e. presta og djákna og 17 leikmenn. Um kirkjuþing sjá nánar: www.kirkjuthing.kirkjan.is

Kjörgengur til kirkjuþings er:

a. hver vígður maður sem á kosningarrétt skv. 3. gr. starfsreglna nr. 8/2021-2022,

b. hver leikmaður sem hefur hlotið skírn í nafni heilagrar þrenningar, skráður er í íslensku þjóðkirkjuna, hefur náð 18 ára aldri og hefur meðmæli sinnar sóknarnefndar.

Hver sá sem fullnægir þessum skilyrðum skal og hafa óflekkað mannorð, sbr. nánar 2.-3. mgr. 7. gr. reglnanna.

Kjörgengisskilyrði skulu vera uppfyllt 1. apríl 2026.

Þeir sem hyggjast bjóða sig fram til kirkjuþings skulu hafa tilkynnt kjörstjórn framboð sitt skriflega, eigi síðar en 15. mars 2026. Tilkynningu um framboð skal senda með tölvupósti á netfangið kirkjan@kirkjan.is eða til skrifstofu Þjóðkirkjunnar, Borgartúni 26, Reykjavík. Æskilegt er að ljósmynd fylgi tilkynningunni.

Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Benediktsdóttir, starfsmaður kjörstjórnar, ragnhildur.benediktsdottir@kirkjan.is.

Kjörstjórn getur óskað eftir því að sá sem hyggst bjóða sig fram framvísi staðfestingu um kjörgengi eða gefi kjörstjórn heimild til að afla gagna er sýni kjörgengi hans.

Ef ekki berast nægilega mörg framboð, sbr. 11. gr. starfsreglnanna, skal kjörstjórn svo fljótt sem auðið er gera uppstillingarnefnd kirkjunnar viðvart. Skal uppstillingarnefnd tilnefna þá frambjóðendur sem á vantar. Skal sú tilnefning hafa borist kjörstjórn eigi síðar en 31. mars nk., ásamt samþykki hlutaðeigandi.

Kosningarnar verða rafrænar og er miðað við að þær standi frá kl. 12:00 fimmtudaginn 7. maí 2026 til kl. 12:00 þriðjudaginn 12. maí sama ár. Kosningarnar verða nánar auglýstar síðar.