Mynd sem tengist textanum
Kristján Ágúst er nýr prestur við Bjarnanesprestakall
20.02.2026

Kristján Ágúst Kjartansson hefur verið ráðinn prestur við Bjarnanesprestakall í Suðurprófastsdæmi.

Kristján Ágúst Kjartansson er fæddur árið 1978 í Reykjavík og ólst upp í Garðabæ. Hann lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands 1998. Kristján lauk mag.theol. prófi frá Háskóla Íslands árið 2019 og hefur starfað víða á vettvangi kirkjunnar síðan. Hann starfaði m.a. í barna- og æskulýðsstarfi Hallgrímskirkju frá 2006 og nú síðast sem framkvæmdastjóri Æskulýðssambands Reykjavíkurprófastsdæma frá 2015 til ársins 2023. Kristján á einn son f. 2002, Ísar Ágúst Kristjánsson, arkitekt.

Kristján verður vígður 15. mars n.k. í dómkirkjunni í Reykjavík.