Mynd sem tengist textanum
Ný vefsíða Þjóðkirkjunnar
25.11.2025

Þjóðkirkjan opnaði í dag nýja heimasíðu kirkjan.is.

Á nýrri heimasíðu er fyrst og síðast leitast við að svara spurningum um hlutverk Þjóðkirkjunnar og þá þjónustu sem hún veitir.

Ýmsar nýjungar má finna á nýrri heimasíðu svo sem viðburðadagatal sem tengir saman viðburði í kirkjum landsins á einn stað. Þá má finna lista yfir allar kirkjur, kapellur og bænhús Þjóðkirkjunnar, og er það líkast til í fyrsta sinn sem slíkur listi er tekinn saman á vefnum. Til gamans má geta að húsin eru alls 361.

Von er á viðbótum og uppfærslum á síðuna næstu daga og vikur og verða þær kynntar hér sem og á samfélagsmiðlum kirkjunnar jafnóðum.

Ábendingar og athugasemdir vegna heimasíðu kirkjunnar má beina á: heimir@kirkjan.is.