
Pétur Veigar Pétursson hefur verið ráðinn mannauðsstjóri Þjóðkirkjunnar og tekur við af Ragnhildi Ásgeirsdóttur. Pétur hefur þegar hafið störf á Biskupsstofu.
Pétur Veigar Pétursson er fæddur árið 1980 og uppalinn á Húsavík þar sem hann bjó til 21 árs aldurs. Pétur er ættaður frá Húsavík og Stöðvarfirði og er þriðji í röð fjögurra bræðra.
Hann lauk stúdentsprófi frá Framhaldsskólanum á Húsavík árið 2001 og dvaldi í Bandaríkjunum í ár sem skiptinemi. Síðar fluttist Pétur til Reykjavíkur og nam íþrótta- og kennslufræði við Kennaraháskóla Íslands. Lauk hann BS gráðu þaðan árið 2005 og MS prófi í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands árið 2012. Pétur hefur starfað við mannauðs- og fræðslumál frá árinu 2014, m.a. hjá Veritas og Rio Tinto.
Eiginkona Péturs er Heiðrún Björk Jónsdóttir grunnskólakennari og eiga þau þrjá syni.