
Um 130 prestar, djáknar og starfsfólk Biskupsstofu er nú saman komið á Akureyri þar sem presta- og djáknastefnan 2026 var sett í gær í Akureyrarkirkju.
Árlega kallar biskup Íslands vígða þjóna kirkjunnar til fundar við sig. Fara þar fram umræður um guðfræði, kirkjuna, þjóna hennar og starf þeirra. Sem fyrr hófst stefnan á því að gengið var í prósessíu frá Menntaskólanum á Akureyri að Akureyrarkirkju þar sem setningarathöfnin fór fram að lokinni messu.
Í dag, miðvikudag, og á morgun, fimmtudag, fór dagskrá stefnunnar fram í Glerárkirkju. Líflegar umræður um játningar kirkjunnar og innri samþykktir áttu sér stað í dag auk þess sem staða á skráningum í Þjóðkirkjuna var rædd.
Líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd var veður eins og best verður á kosið - heimamönnum til lítillar undrunar, enda alltaf gott veður á Akureyri.