Mynd sem tengist textanum
Prests og djáknavígsla á sunnudaginn
22.08.2025

Biskup Íslands Guðrún Karls Helgudóttir vígir tvo guðfræðinga til prests næstkomandi sunnudag og einn djákna.

Athöfnin fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík klukkan 11:00 fyrir hádegi.

Vígðar til prests verða Elísa Mjöll Sigurðardóttir mag. theol, sem ráðin hefur verið til sóknarprestsþjónustu við Breiðafjarðar og Strandaprestakall í Vestfjarðaprófastsdæmi og Margrét Rut Valdimarsdóttir mag. theol. sem ráðin hefur verið til héraðsprestsþjónustu í Húnavatns og Skagafjarðarprófastsdæmi með sérstakar skyldur við Skagaströnd.

Eva Lín Traustadóttir verður vígð til starfs djákna við Tjarnaprestakall í Kjalarnesprófastsdæmi.

Allar þrjár útskrifuðust nú í sumar frá Guðfræði og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.