
Prestur og djákni vígð í Dómkirkjunni í Reykjavík
18.12.2025
Sunnudaginn 14. desember var hátíð í Þjóðkirkjunni þegar það bættust við tveir nýjir vígðir þjónar.
Hilda María Sigurðardóttir vígðist til prestsþjónustu í Stykkishólmsprestakalli og Guðrún Gyðu Sigurðardóttir vígðist til djáknaþjónustu í Digranes- og Hjallaprestakalli.
Biskup Íslands Guðrún Karls Helgadóttir vígði.
Vígsluvottar voru prestarnir Arna Ýrr Sigurðardóttir, María Guðrúnardóttir Ágústsdóttir, Gunnar Eiríkur Hauksson, Alfreð Örn Finnsson, Bryndís Malla Elídóttir og Sveinn Valgeirsson og Ívar Valbergsson djákni.
Þjóðkirkjan fagnar nýjum þjónum og býður þær hjartanlega velkomnar!