
Á dögunum var styrkjum úr Tónlistarsjóð kirkjunnar og STEFs úthlutað. Markmið sjóðsins er að efla kirkjulega tónlist og textagerð við slíka tónlist. Í því skyni styrkir sjóðurinn frumsköpun tónlistar og texta, útsetningar, útgáfu og önnur þau verkefni sem samræmast tilgangi sjóðsins. Í ár sóttu 20 verkefni um styrki að upphæð 14.300.000 kr. Til úthlutunar voru 3.000.000 sem skiptast milli 7 verkefna. Styrkhafar ársins 2025 eru:
Eggert Pálsson - Útgáfa á Þorlákstíðum
Gunnar Andreas Kristinsson - Sálumessa fyrir Gaza
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð - Jólalög foreldra
Kirstín Erna Blöndal - Sálmalög fyrir syrgjendur
Umbra - Hljóðritun á Tvær hliðar Hallgríms
Valgerður Jónsdóttir - Sjö marglaga sönglög við trúarlega texta
Þórður Sigurðsson - Liljulög
Tónlistarsjóður kirkjunnar og STEFs og Þjóðkirkjan þakkar öllum umsækjendum fyrir umsóknir og óskar styrkhöfum innilega til hamingju með styrkina og góðs gengis með verkefni sín.
Á myndinni eru nokkrir styrkhafar, þær Kirstín Erna Blöndal, Lilja Dögg Guðmundsdóttir og Valgerður Jónsdóttir.