mynd af atburðinum
Skálholtshátíð 2026
Sunnudagur 19. júlí
kl. 14:00 - 11:00
Skálholtsdómkirkja
  • Fullorðnir
  • Eldri borgarar

Skálholtshátíð verður haldin helgina 18 - 19 júlí 2026. Yfirskrift hátíðarinnar verður „Boðun tær í bernsku trúar.“ Gefst þá einnig tækifæri til að skoða og fjalla um hlutverk Ísleifs hvort sem hann kallast trúboðsbiskup á föðurleifð sinni í Skálholti eða fyrsti stólsbiskup á Íslandi. Dagskráin er í mótun en hún er sett með útimessu við Þorlákssæti á laugardagsmorgni og sama dag verða hátíðartónleikar síðdegis og hugsanlega málþing um morguninn. Boðið verður uppá barnadagskrá, fornleifaskóla og örpílagrímagöngu barna. Pílagrímaganga verður til Skálholts í nokkra daga á undan að venju. Sunnudaginn 19. júlí verða orgeltónleikar fyrir hádegi en hátíðarmessan með fjölda þátttakenda er kl. 14 og hátíðardagskrá kl. 16. Á dagskránni eru flutt hátíðarerindi og ýmis tíðindi í bland við einstaka tónlist með Skálholtskórnum við orgel og flygil. Þá er öllum boðið í kirkjukaffi í boði Skálholtsstaðar milli messu og hátíðardagskrár. Oftast hefur verið gott veður á hátíðinni svo kaffið hefur verið…

Sýna meira