Viðburðir

Þriðjudagur 27. október

forsíðumynd viðburðarins

Eldriborgarasamvera 27. október

27. októberkl. 12:00
Hafnarfjarðarkirkja

🌿 Eldriborgarasamvera í Hafnarfjarðarkirkju 🌿 Þriðjudaginn 27.október kl. 12.00 kemur Svavar Gunnar Jónsson til okkar í gott spjall um Kirkjubæ í Færeyjum. Verið hjartanlega velkomin í notalega samveru💚 Kirkjan Prestar, starfsfólk og sóknarnefnd, saga kirkjunnar, gjaldskrá og útleiga á veislusal.

forsíðumynd viðburðarins

Kirkja í mótun – Hádegisfyrirlestrar í hádeginu á þriðjudögum í október

27. októberkl. 12:00
Hallgrímskirkja

Kirkja í mótunHádegisfyrirlestrar í Hallgrímskirkju á þriðjudögum í október 2026 kl. 12:00–13:00. Léttar veitingar í boði.Á þriðjudögum kl. 12.00–13.00 í október verður boðið upp á fræðandi fyrirlestra í Hallgrímskirkju. Í tilefni af 40 ára vígsluafmæli kirkjunnar gefa fyrirlestrarnir að þessu sinni áheyrendum tækifæri til að kynnast kirkjubyggingunni nánar, hugmyndunum sem liggja að baki hönnunar hennar og þeirri sögu sem mótað hefur kirkjuna, umhverfi hennar og stöðu hennar sem eins helsta kennileitis Reykjavíkur.Arkitektinn Andrés Narfi Andrésson hefur fyrirlestraröðina þriðjudaginn 6. október og fjallar þar um Hallgrímskirkju, tilurð hennar og arkitektúr.Einnig gefur Andrés Narfi sérstakan hátíðarfyrirlestur fimmtudaginn 22. október kl. 17.00 þar sem hann fjallar nánar um Hallgrímskirkju og sögu hennar.Dagana 18.-25. október verður sérstök afmælisvika í tilefni af vígsluafmælinu þann 25. október sem haldið verður upp á með ýmsum viðburðum. Hátíðarfyrirlestur Andrésar Narfa er hluti af afmælisvikunni.Fyrirlestrarnir eru á íslenskuHALLGRÍMSKIRKJA – Í MÓTUN

forsíðumynd viðburðarins

Kirkja í mótun - Myndlist í Hallgrímskirkju

27. októberkl. 12:00
Hallgrímskirkja

Kirkja í mótun Hádegisfyrirlestrar í Hallgrímskirkju á þriðjudögum í október 2026 kl. 12:00–13:00. Léttar veitingar í boði. Í tilefni af 40 ára vígsluafmæli kirkjunnar gefa fyrirlestrarnir að þessu sinni áheyrendum tækifæri til að kynnast kirkjubyggingunni nánar, hugmyndunum sem liggja að baki hönnunar hennar og þeirri sögu sem mótað hefur kirkjuna, umhverfi hennar og stöðu hennar sem eins helsta kennileitis Reykjavíkur. Lokafyrirlestur fyrirlestrarraðarinnar Kirkja í mótun ber fyrirsögnina Myndlist í Hallgrímskirkju og fer fram 27. október kl. 12-13. Fyrirlesari er Aðalheiður Valgeirsdóttir, myndlistarmaður og listfræðingur HALLGRÍMSKIRKJA – Í MÓTUN

forsíðumynd viðburðarins

Fyrirbænir og kyrrð í Grensáskirkju

27. októberkl. 12:00
Grensáskirkja

Fyrirbænastundir fara fram í hádeginu alla þriðjudaga í Grensáskirkju. Hægt er að óska eftir fyrirbænum, bæði með að hringja í síma 528-8510, skrifa prestunum tölvupóst eða með því að mæta á staðinn og skrifa fyrirbænir sínar á bænalista. Ásta Haraldsdóttir organisti leikur ljúfa tónlist frá kl. 12 til 12:10 og hefst þá fyrirbænastundin. Henni lýkur fyrir klukkan 12:30. Léttar veitingar í safnaðarheimilinu að bænastund lokinni.  Verið hjartanlega velkomin í Grensáskirkju á þriðjudögum í hádeginu. 

forsíðumynd viðburðarins

Eldriborgarasamvera í október

27. októberkl. 12:00
Hafnarfjarðarkirkja

Gestir eldriborgarasamveru Hafnarfjarðarkirkju í október:6. október: Þórarinn Eldjárn rithöfundur13. október: Kristján Hrannar Pálsson organisti – rímur20. október: Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir – eitthvað óvænt27. október: Svavar Gunnar Jónsson – Kirkjubær í FæreyjumVerið hjartanlega velkomin!

forsíðumynd viðburðarins

Orgóber í Hafnarfjarðarkirkju 27.október kl 12.00

27. októberkl. 12:00
Hafnarfjarðarkirkja

Orgóber í Hafnarfjarðarkirkju. Hádegistónleikar 27.október klukkan 12.00 Steingrímur Þórhallsson leikur verk á bæði orgel kirkjunnar. Verk eftir Bach, Boëlmann og Steingrím sjálfan. Aðgangur ókeypis.

forsíðumynd viðburðarins

GÆÐASTUND eldri borgara

27. októberkl. 13:30
Háteigskirkja

Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 27. október, kl. 13:30 til 15 í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Magnea Einarsdóttir, fatahönnuður, flytur erindi sem ber yfirskriftina: “Hannað úr íslenskri ull og garni”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!

Kirkjuprakkarar í Grensáskirkju, þriðjudagur kl. 15-16.30

27. októberkl. 15:00
Grensáskirkja

Yfirskriftin að þessu sinni er Biblíusögur með leik og LEGO. Við munum lesa nokkrar Biblíusögur og tengja boðskap þeirra við nútímann. Við munum bæði leika þær með léttum leikmunum og byggja þær með LEGO kubbum.  Í dag ætlum við að skera út í grasker. Kirkjuprakkarar í Grensáskirkju eru á aldrinum 6-9 ára (1.-4. bekk). Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarupplýsingar, hér á heimasíðunni, eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is. Það er ókeypis að taka þátt. Umsjónarmenn starfsins og leiðtogar sækja börnin sem skráð eru yfir í Krakkakot, frístundarheimili Hvassaleitisskóla og fylgja þeim yfir í Grensáskirkju, sé þess óskað. Börn sem ekki eru í Hvassaleitisskóla geta mætt beint í Grensáskirkju. Að starfinu loknu er börnunum fylgt í frístundaheimilið eða forráðamenn sækja börnin í kirkjuna eða þau bjarga sér heim.  Hvenær? Á þriðjudögum kl. 15:00-16:30 og einn sunnudag kl. 11:00.  Dagsetningar Þriðjudaginn  13. október Þriðjudaginn  20. október Þriðjudaginn 27. október Þriðjudaginn 3. nóvember Þriðjudaginn 10. nóvember Þriðjudaginn 17. nóvember Sunnudaginn 22. nóvember kl. 11.00 – 12.30. Uppskeruhátið í fjölskyldumessu sunnudaginn 22. nóvember kl.11:00 í Grensáskirkju og sýning á verkum barnanna. Hjartanlega velkomin(n)

forsíðumynd viðburðarins

Kyrrðarbæn - Glerárkirkja, Akureyri

27. októberkl. 16:30
Glerárkirkja

Þriðjudagar kl. 16:30 Kyrrðarbænastundirnar verða í kapellu kirkjunnar og gengið er inn um hliðarinngang, sunnanmegin við aðalinngang kirkjunnar. Þau sem eru að mæta í fyrsta skipti geta komið aðeins fyrr og fengið leiðsögn. Umsjón: Astrid Magnúsdóttir, Katrín Ásgrímsdóttir, sr. Guðmundur Guðmundsson og sr. Sindri Geir Óskarsson sem gefur upplýsingar á netfanginu: sindrigeir@glerarkirkja.is

forsíðumynd viðburðarins

TTT - Tíu til tólf ára í Grensáskirkju, þriðjudagur kl. 16.30-18.00

27. októberkl. 16:30
Grensáskirkja

Yfirskriftin að þessu sinni er Kærleikur og vinátta með Jesú í skapandi leik og list. Við munum kynnast lífi og starfi Jesú Krists og efla vináttuna með því að tjá kærleiksboðskapinn í gegnum leik og listir. Jafnframt munum við vinna með sjö jákvæð gildi í góðum samskiptum með því að segja Biblíusögur og skapa list sem tengjast gildunum. Með þessari vinnu viljum við efla tengsl barnanna, dýpka skilning þeirra á gildunum og styrkja sjálfsmynd þeirra. Gildin sem fjallað verður um eru: vinátta, fyrirgefning, samkennd, gleði, traust, virðing og þakklæti. Í dag ætlum við að vinna skapandi með grasker. TTT - starfið í Grensáskirkju er fyrir öll börn á aldrinum 10-12 ára (5.-7. bekk). Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarupplýsingar, hér á heimasíðunni, eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is. Það er ókeypis að taka þátt. Börnin mæta sjálf í starfið í safnaðarheimili Grensáskirkju en gengið er inn um aðaldyr kirkjunnar.  Hvenær? Á þriðjudögum kl. 16:30-18:00 og einn sunnudag kl. 11:00.  Dagsetningar Þriðjudaginn  13. október Þriðjudaginn  20. október Þriðjudaginn 27. október Þriðjudaginn 3. nóvember Þriðjudaginn 10. nóvember Þriðjudaginn 17. nóvember Sunnudaginn 22. nóvember kl. 11.00 – 12.30. Uppskeruhátið í fjölskyldumessu sunnudaginn 22. nóvember kl.11:00 í Grensáskirkju og sýning á verkum barnanna. Hjartanlega velkomin(n)

forsíðumynd viðburðarins

Margbrotna systir mín - Útgáfuhóf

27. októberkl. 17:00
Neskirkja

Í tilefni útgáfu bókarinnar Margbrotna systir mín eftir Sæunni Kjartansdóttur verður blásið til útgáfuhófs í safnaðarheimili Neskirkju þriðjudaginn 27. október kl 17:00. Höfundur les upp og áritar bækur, léttar veitingar verða í boði, lifandi tónlist og bókin á sérstöku útgáfutilboði. Við hlökkum til að sjá ykkur!

forsíðumynd viðburðarins

Kyrrðarbæn - Landakirkja

27. októberkl. 17:00
Landakirkja Vestmannaeyjum

Þriðjudagar kl. 17:00 Umsjón: Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir, Vera Björk Einarsdóttir og Þóranna M. Sigurbergsdóttir sem gefur upplýsingar á netfanginu: thorannams@gmail.com

forsíðumynd viðburðarins

Kyrrðarstund í Hjallakirkju

27. októberkl. 18:00
Hjallakirkja

Kyrrðarstund í Hjallakirkju þriðjudaga 18-18.30. Um er að ræða stutta helgistund þar sem fólk kemur saman og situr í þögn og íhugun. Ólík form hafa verið notuð á kyrrðarstundunum eins og Biblíuleg íhugun, form núvitundarstunda og kyrrðarbæn. Stundirnar veita fólki tækifæri á að stíga út úr erli dagsins til andlegrar iðkunar. Öll velkomin.

forsíðumynd viðburðarins

Menningarvaka eldri borgara

27. októberkl. 18:00
Seljakirkja

Dagskrá hefst í helgidómnum kl. 18. Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi Alþingismaður, flytur okkur erindi og Sálmabandið leikur tónlist fyrir kirkjugesti. Sálmaband Dómkirkjunnar er skipað kórfélögum Dómkórsins í Reykjavík: Ása Bríem, harmonikka, Jón Ívars, gítar, Sigmundur Sigurðarson, gítar, Thelma Rós Sigfúsdóttir, víóla og Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur Dómkirkjunnar leikur á kontrabassa. Hafa þau sérhæft sig í því að gamla og rótgróna sálma ferskum tónblæ með skemmtilegri hljóðfæraskipan og kynningum.

forsíðumynd viðburðarins

J.S. Bach á þriðjudagskvöldum

27. októberkl. 20:00
Dómkirkjan í Reykjavík

Píanóleikarinn Ólafur Elíasson leikur nokkrar af 48 prelódíum og fúgum Bachs á flygilinn í Dómkirkjunni öll þriðjudagskvöld.Aðgangur ókeypis.Ólafur var nemandi Rögnvaldar Sigurjónssonar píanóleikara á Íslandi en stundaði svo framhaldsnám fyrst í París hjá hinum heimsþekkta píanóleikara Vlado Perlemuter og síðar í Englandi, m.a. við konunglega tónlistarháskólann í London (Royal Academy of Music). Hann hefur komið fram í þekktum tónlistahúsum á borð við Wigmore Hall í London, Carnegie Hall í New York og Kennidy Center í Washington.Síðan 2016 hefur Ólafur leikið tónlist eftir J.S. Bach á vikulegum tónleikum í Dómkirkjunni í Reykjavík allt árið um kring.

Æskulýðsfélagið Pony í Grensáskirkju, þriðjudagur kl. 20.00

27. októberkl. 20:00
Grensáskirkja

Hrekkjavaka í Pony í kvöld. Þau sem vilja mæta í búningum. Æskulýðsfélagið Pony er æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-10. bekk. Æskulýðsfundirnir fara fram í safnaðarheimili Grensáskirkju, gengið inn um aðalinnganginn, á þriðjudögum klukkan 20.00-21.30. Félagið er samstarfsverkefni Bústaðakirkju og Grensáskirkju. Þátttaka er ókeypis. Æskulýðsfélagið er vettvangur unglinga til að leika, læra og efla bænalíf sitt í góðu og heilbrigðu umhverfi. Áhersla er á að hafa dagskrána fjölbreytta og skemmtilega. Félagið tekur virkan þátt í viðburðum og mótum ÆSKH og ÆSKÞ. Umsjón með æskulýðsstarfinu hafa Sr. Sólveig Franklínsdóttir, æskulýðsprestur, Gabríel Bjarmi Jónsson, Iðunn Helga Zimsen og Gréta Petrína Zimsen ásamt ungleiðtogum. Upplýsingar um starfið veitir Sólveig á solveig@kirkja.is 

forsíðumynd viðburðarins

GONG slökun í Borgarneskirkju

27. októberkl. 20:00
Borgarneskirkja

Þá er komið að gong slökun í Borgarneskirkju - 27. október kl 20:00! Þú þarft bara að taka með jóga dýnu, teppi og hlýja sokka. Erla Kristjáns leiðir okkur inn í fallega slökun í þessu magnaða rými sem kirkjan okkar er. Sjáumst <3

forsíðumynd viðburðarins

Ljósalistaverk með Mercury Maze

27. októberkl. 20:00
Reyðarfjarðarkirkja

Í tilefni Daga myrkurs mun listahópurinn Mercury Maze umbreyta kirkjum í þremur bæjum Fjarðabyggðar í lifandi listaverk með ljósum, hljóðum og gagnvirkri vörpunarlist. Verkið sækir innblástur í þjóðsöguna um Völvuna á Hólmahálsi, sem samkvæmt sögunni verndaði fjörðinn og samfélagið. Með samspili ljóss, hljóðs og hreyfingar fær þessi gamla þjóðsaga nýtt líf og gestum gefst tækifæri til að taka virkan þátt í listaverkinu. Mercury Maze samanstendur af listafólkinu Katerinu Blahutovu, Þorsteini Eyfjörð og Owen Hindley, sem sameina myndlist, tónlist og tækni í einstaka upplifun. 27. október kl. 20:00–22:00 – Reyðarfjarðarkirkja, Reyðarfirði 28. október kl. 20:00–22:00 – Fáskrúðsfjarðarkirkja, Fáskrúðsfirði 29. október kl. 20:00–22:00 – Norðfjarðarkirkja, Neskaupstað Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!

forsíðumynd viðburðarins

Öryggi barnanna okkar- Foreldramorgnar í Guðríðarkirkju

28. októberkl. 10:00
Guðríðarkirkja

🚗👶 Öryggi barnanna okkar í umferðinni Foreldramorgnar í Guðríðarkirkju – miðvikudaginn 28. október kl. 10–12 Við fáum til okkar góðan gest frá Samgöngustofu, Bjarklindi Björk Gunnarsdóttur, sérfræðing í öryggis- og fræðsludeild, sem ætlar að fræða okkur um umferðaröryggi barna. Hvernig tryggjum við öryggi litlu barnanna okkar í bílnum? Hvað þurfum við að hafa í huga varðandi barnabílstóla, réttan frágang og öryggi barna í umferðinni almennt? Bjarklind mun fara yfir mikilvæg atriði sem gott er fyrir alla að þekkja og gefst einnig tækifæri til að spyrja spurninga. Við hvetjum alla til að mæta! 💛 Fræðslan er ekki aðeins ætluð foreldrum í fæðingarorlofi heldur líka verðandi foreldrum, ömmum, öfum og öllum þeim sem annast ung börn eða vilja fræðast um öryggi þeirra í umferðinni. Það er mikilvægt að allir sem ferðast með börn þekki til öryggismála. ☕ Foreldramorgnarnir hefjast kl. 10 og fræðslan byrjar um kl. 10:30. Verið hjartanlega velkomin í Guðríðarkirkju í notalega samveru, spjall og gagnlega fræðslu. 💛

forsíðumynd viðburðarins

Foreldramorgnar í Hallgrímskirkju

28. októberkl. 10:00
Hallgrímskirkja

Á miðvikudagsmorgnum kl. 10:00–12:00 eru foreldramorgnar í kórkjallara Hallgrímskirkju (gengið inn bakdyramegin).Samverurnar eru fyrir foreldra/umsjónar- og forráðamenn auk barna þeirra.Fjölskyldur á öllum aldri eru hjartanlega velkomnar og henta þessar stundir sérstaklega þeim sem eru í fæðingarorlofi eða heimavinnandi.Foreldramorgnar eru notaleg stund þar sem markmiðið er að efla félagsleg tengsl foreldra og barna í hlýju og opnu umhverfi.Söngstund er kl. 11:00.Stundum kíkir góður gestur í heimsókn.Ömmur, afar og au-pair velkomin.Boðið er upp á hressingu.Hlýtt andrúmsloft, góð samvera og gleði fyrir stór og smá.Umsjón með foreldramorgnum hafa Ragnheiður Bjarnadóttir, píanókennari, og Olga Helgadóttir.Foreldramorgnar eru einnig með Facebook-hóp: Parents’ Mornings at Hallgrímskirkja / Hallgrimskirkja PlaygroupHALLGRÍMSKIRKJA – STAÐUR BARNANNA

forsíðumynd viðburðarins

Morgunmessa

28. októberkl. 10:00
Hallgrímskirkja

Alla miðvikudagsmorgna er messað í Hallgrímskirkju kl. 10:00.Hópur messuþjóna sér um messurnar ásamt prestum kirkjunnar.Kaffiveitingar að messu lokinni í Suðursal.Hjartanlega velkomin!HALLGRÍMSKIRKJA - ÞINN STAÐUR

forsíðumynd viðburðarins

Hátíðartónleikar á miðvikudegi með Erni Árnasyni og Jónasi Þóri

28. októberkl. 12:05
Bústaðakirkja

Hátíðartónleikar á miðvikudegi með Erni Árnasyni og Jónasi Þóri.

forsíðumynd viðburðarins

Örn Árnason og Jónas Þórir á hádegistónleikum

28. októberkl. 12:05
Bústaðakirkja

Hádegistónleikar fara fram miðvikudaginn 28. október kl. 12:05 í Bústaðakirkju. Örn Árnason leikari og Jónas Þórir organisti flytja vel valdar revíur og gamanmál.  Jónas Þórir organisti Bústaðakirkju hefur veg og vanda að dagskránni í Bleikum október.  Aðgangur á alla viðburði í Bleikum október í Bústaðakirkju er ókeypis. Tekið er við frjálsum framlögum til Ljóssins og svo eru bleiku slaufur Krabbameinsfélagsins til sölu. Léttar veitingar í safnaðarheimilinu að tónleikum loknum.  Verið hjartanlega velkomin á tónleika í Bleikum október í Bústaðakirkju. 

forsíðumynd viðburðarins

Félagsstarf eldri borgara í Bústaðakirkju - Sr. Benedikt Sigurðsson lítur í heimsókn með harmonikkuna - Miðvikudagur, 28. október kl. 13:00

28. októberkl. 13:00
Bústaðakirkja

Sr. Benedikt Sigurðsson er prestur í Garðasókn. Hann er einnig fær harmonikkuleikari og er stundum kallaður "Benni á nikkunni". Hann hefur unnið mikið að tónlist með t.a.m. Heru Björk, Bjartmari Guðlaugs, KK, Pálma Sigurhjartar, hljómsveitinni Albatross, Jógvani Hansen, Ara Ólafssyni og fl og fl. og gaf svo út hljómplötu árið 2020.  Dagskráin er glæsileg í eldri borgara starfinu.  Og kaffiveitingarnar ekki síðri en Andrea Þóra Ásgeirsdóttir kirkjuhaldari sér um veitingar.  Verið hjartanlega velkomin í eldri borgarastarfið í Bústaðakirkju á miðvikudögum kl. 13 - 16.