
Bardukha: Glettur, tónar og taktar
Þriðjudagur 14. júlí
kl. 19:30 - 21:30
Hvalsneskirkja- Tónlist
- Ferðamenn
- Eldri borgarar
- Fullorðnir
Hljómsveitin Bardukha kemur saman á ný eftir átján ára fjarveru. Dagskráin inniheldur líflega balkanska tónlist og rómani-innblásna tónlist sem hentar hljómburði Hvalsneskirkju sérstaklega vel.
Meðlimir Bardukha eru:
Hjörleifur Valsson fiðla
Birgir Bragason kontrabassi
Ástvaldur Traustason harmonikka
Steingrímur Guðmundsson slagverk.
Aðgangseyrir er 3.900.-
Ókeypis fyrir börn 18 ára og yngri.
Molasopi í Kaffi Golu eftir tónleika
Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.