mynd af atburðinum
Sumarganga í Fossvogsgarði
Miðvikudagur 15. júlí
kl. 17:30 - 19:30
Fossvogskirkja

Sumarganga í Fossvogsgarði undir leiðsögn Bryndísar Björgvinsdóttur starfsmanns garðsins. Gengið verður um elstu hluta garðsins og staldrað við nokkra reiti sem búa yfir tengingum við sögufræga atburði eða persónur sem settu sitt mark á síðustu öld.

Fjallað verður um hefðir og siði sem tengjast kirkjugörðum og hvernig hvoru tveggja birtist í Fossvogsgarði. Staldrað verður við minnisvarða sem varpa ljósi á suma merkustu atburði 20. aldar og um leið verður göngufólki bent á áhugaverðan gróður sem dafnar í garðinum.

Komið er saman við Fossvogskirkju.

Skráning fer fram hér: https://www.kirkjugardar.is/thjonusta/ganga/sumarkvold-og-saga