
Flateyjarkirkja á Breiðafirði
Flateyjarkirkja stendur þar sem eyjan rís hæst. Kirkjan var vígð þann 19. desember árið 1926 og er eitt fegursta minnisverk Guðjóns Samúelssonar, húsameistara og arkitekts. Það sem vekur mesta athygli flestra, eru myndir í lofti kirkjunnar sem listamaðurinn Baltasar Samper gerði fyrst árið 1964. Þær myndir eyðilögðust alveg, vegna raka og annarra ófullkominna aðstæðna í kirkjunni.
Árið 1992 málaði Baltasar, ásamt Kristjönu eiginkonu, sinni nýjar myndir á kirkjuloftið, en myndirnar sýna, sem hinar fyrri, þætti úr atvinnulífi og sögu hins forna Flateyjarhrepps. Altaristaflan er mynd af bryggjunni í Flatey og sýnir Krist með fiskimönnunum. Kristur, sem er íklæddur lopapeysu, líkist talsvert listamanninum sjálfum og fiskimennirnir eru þeir Hafsteinn Guðmundsson bóndi í Flatey og Jóhannes Gíslason bóndi í Skáleyjum. Í loftinu svífur svo örn ofar útsýnisvörðu Ólafs Teitssonar í Sviðnum.
Á vegg milli altaristöflu og prédikunarstóls er llítið alabasturslíkneski af heilögum Andrési og er það talið vera úr altaristöflu frá seinni hlluta 15. aldar. Einkenni Andrésar eru bók og Andrésarkrossinn. Stærð myndarinnar ber þess vott að hún hafi verið hluti af alltaristöflu. Upphaflegir litir hafa máðst að mestu, en þó má greina liti í skeggi, hári og skikkjufóðri.
Patína og kaleikur eru í kirkjunni sem talið er að hafi komið til Flateyjar með Hansakaupmönnum.
Í tilefni 100 ára afmælis kirkjunnar var mikil dagskrá í Flatey sumarið 2026. Af sama tilefni kom út bókin Saga Flateyjarkirkju á Breiðafirði eftir dr. Sigfús Jónsson, land- og sagnfræðing.
Ljósmynd tók Rüdiger Þór Seidenfaden.