Mynd sem tengist textanum
Heimilisfang
Kirkjubraut 2, 170 Seltjarnarnes
Símanúmer
561-1550
Bílastæði
Hljóðkerfi
Safnaðarheimili
Salerni
Streymi
Aðgengi
Fjöldi: 300
Sókn
Seltjarnarnessókn

Seltjarnarneskirkja

Hönnuðir Seltjarnarneskirkju voru feðgarnir Hörður Björnsson, byggingatæknifræðingur og Hörður Harðarson arkitekt, en þeir urðu hlutskarpastir í samkeppninni um kirkjuna.

Byggingameistari var Sigurður Kr. Árnason og formaður bygginganefndar var Karl B. Guðmundsson. Kirkjan var vígð þann 19. febrúar árið 1989. Áður hafði verið notast við neðri hæð kirkjunnar, þar sem nú er sunnudagaskóli og fleira.

Vígsla orgels fór fram þann 21. mars árið 1999. Það var smíðað af Björgvin Tómssyni orgelsmið og er 17 radda. Með Björgvin við smíðina unnu Jóhann Hallur Jónasson, Pétur Eiríksson, Hallfríður Guðmundsdóttir og Bjarki Már Jónsson. Í kirkjunni er jafnframt Yamaha flygill og öflugt hljóðkerfi. Listaverkið „frá myrkri til ljóss“ eftir Herdísi Tómasdóttur kom í kirkjuna árið 1990 og er á vegg hægra megin við prédikunarstólinn.

Skírnarfonturinn er úr viði með kristalskál, kirkjan á enn fremur silfurkaleik og patínu og 75 sérbikara. Glerlistaverk Ingunnar Benediktsdóttur eru í anddyri kirkju. Rafdrifnar kirkjuklukkur eru staðsettar í klukkuturni framan við kirkjuna og eru alls þrjár.