
Útialtari við Esjuberg
Sagnir herma að kirkja hafi staðið á Esjubergi fyrir kristnitöku, um árið 900.
Sögufélagið Steini ákvað að reisa útialtari til minningar um þessa kirkju. Frumteikningu og hugmyndir að gerð og útliti keltneska altarisins á Esjubergi setti séra Gunnþór Þ. Ingason fram árið 2011. Fagteikningar vann Sigurborg Ó. Haraldsdóttir landslagsarkitekt. Keltneska útialtarið er að lögun eins og keltneskur kross. Á sjálfum altarissteininum sem sóttur var í Esjubergsnámur stendur svo veglegur keltneskur kross sem Guðni Ársæll Indriðason á Melum steypti. Fjörusteinum frá skosku eyjunum Iona og Lindisfarne og úr Klébergsfjöru á Kjalarnesi var svo þrykkt í krossinn.
Stjórn sögufélagsins aflaði fjár og sá um framkvæmdina. Esjubergsaltarið er vígður staður, var vígt 20. júní árið 2021 og stendur öllum opið. Þar getur fólk haft um hönd ýmiss konar menningarviðburði, gengið í hjónaband, látið skírast og numið staðar til að hvílast. Frá útialtarinu er gönguleið á Esjuna um Kerhólakamb. Útialtarið er kristinn helgistaður í eigu Sögufélagsins Steina og nýtur kirkjulegrar þjónustu frá Esjuprestakalli. Skírnarskál útialtarisins gerði Sigrún Ó. Einarsdóttir, glerlistakona, í Bergvík á Kjalarnesi.