Fegurðin í hinu ófullkomna

Og gleymum því ekki að þessir breysku menn sem þarna fengu hið óleysanlega verkefni áttu eftir að verða leiðtogar, móta heiminn og breyta öllum forsendum. Þar ganga þeir á undan fyrir okkur öll sem fetum í þeirra fótspor. Það er ekki okkar að vita allt eða geta allt, heldur þvert á móti þora að sýna veikleika okkar, viðurkenna mistök og segja hreinskilnislega: „Ég veit þetta ekki, ég þarf hjálp.“

Ellefu uppi á fjalli, saga þeirra hefur þegar verið rakin og hún ber þess ekki merki að þeir hafi neina yfirburði umfram annað fólk.


Sagan um lærisveinana

Veitum því athygli að heimildirnar fjórar sem kristnir menn viðurkenndu að væru áreiðanlegastar um líf og störf Jesú, draga síður en svo upp bjarta mynd af ellefumenningum þessum. Ætla má að þeir sjálfir eða bandamenn þeirra hefðu haft aðgang að þeim frásögnum sem við köllum guðspjöll, sem eru sögurnar um Jesú og þá sjálfa.

Eftirmönnum þeirra hefði verið í lófa lagið að flíkka aðeins upp á þær, ekki ósvipað og þegar sjálfsævisagnahöfundar rekja atburðarrás frá sinni hlið og fegra þá, eðli málsins samkvæmt, sinn málstað og sín framlög. Já, hefur maður ekki lesið slíkar frásagnir? Einhverju ástandi er lýst, og þá stígur söguhetjan fram og finnur lausn á vanda sem engum öðrum hefði dottið í hug?

„Og þá sagði ég...“

Nei, guðspjöllin eiga engar slíkar frásagnir af lærisveinum Jesú, þessum sem voru viðstaddir þessa kveðjustund. Þeir voru vissulega tólf upphaflega. Einn þeirra, Júdas, hafði svikið Jesú og stytt sér svo aldur í framhaldinu. Já, það er til marks um áhrif þessara ellefu að þeir eiga sér nafna út um allan heim: Pétur, Jóhannes, Mattheus, Andrés, Jakob ... svona getum við talið áfram og við könnumst örugglega við einhverja sem bera þess nöfn enn í dag.

En mér er ekki kunnugt um að mannanafnanefnd hafi þurft að svara foreldrum sem vildu nefna son sinn Júdas. Aldrei hefur heyrst á leikskólalóð setning eins og: „Júdas Máni, ekki taka skófluna af Maríu.“

Sumir kristnir guðfræðingar hafa í gegnum tíðina litið svo á að stóra syndin í Júdasar Ískaríots hafi ekki endilega verið að svíkja meistara sinn fyrir þrjátíu silfurpeninga. Það var fremur að hann glataði allri von í framhaldinu, trúði því ekki að unnt væri að fyrirgefa það afbrot sem hann hafði framið og hafi því gripið til þessara óyndisráða. Þess vegna sker hann sig úr öllum hinum og enginn ber nafn hans, nema þá sem uppnefni ef fólk reynist ekki trútt sínum málstað.


Ekkert einvalalið

Nei, þessir ellefu á fjallinu voru ekki hluti af því sem við myndum kalla einvalalið. Þetta var ekki úrvalið eftir ströng próf eða hvert úrtakið á fætur öðru eins og við sjáum í raunveruleikaþáttum eða á íþróttaæfingum. Það er jú sviðsmyndin sem blasir við okkur þegar horfum á jafnmarga leikmenn spila fótbolta í meistaraflokki. Að baki þeim sem þar etja kappi er fjöldi annarra sem náðu ekki svona langt.

Hér erum við að tala um hóp ungra manna, lærisveina, svo kallaðra sem í frásögnum af Jesú tóku iðullega rangan pól í hæðina. Þetta guðspjall sem hér var lesið flytjum við skírn í kirkjum. Þá lesum við líka frásögnina af því þegar fólk færði börn til Jesú og þar segir: „en lærisveinarnir átöldu þá.“ Já, þeir vildu halda börnunum frá meistara sínum. „En Jesú sárnaði“ segir svo. Hver frásögnin rekur aðra þar sem þeir misskilja boðskapinn og loks þegar komið er að leiðarlokum, kvöldið fyrir sjálfa krossfestinguna þá geta þeir ekki einu sinni haldið sér vakandi þegar Jesús biður þá um að vera með sér. Og Pétur, sá sem fékk sjálf lyklavöldin, hann afneitaði frelsara sínum þegar á hann var gengið.

Enn varð meistari þeirra sár yfir því hversu hvikulur þeir voru og ótraustir.

„Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum“.

Er þetta nú einmitt hópurinn til að vinna slíkt stórvirki? Ætlarðu að treysta þessum til að fara út um allan hinn þekkta heim með sögurnar í farteskinu, sögur sem lýsa meðal annars þeirra eigin glappaskotum? Svona væri eðlilegt að spyrja.

Það hlýtur að vera enn eitt kraftaverkið að þessum skyldi auðnast að uppfylla það hlutverk.


Fegurðin í hinu ófullkomna

Hver skyldi vera boðskapurinn að baki þessu vali? Þetta er á sinn hátt lofgjörð til hins ófullkomna er það ekki? Eða er ekki annars einhver fegurð í því sem er ekki alveg 100%? Eftirlætishlutirnir á mínu heimili eru til að mynda verk sem börnin mín hafa unnið í handavinnu og smíði. Standast þau jöfnuðinn við það sem sett var saman af fagfólki eða fjöldaframleitt í verksmiðjum? Nei, heldur betur ekki. Samt myndi ég sennilega setja þá muni í töskuna ef ég þyrfti að bjarga verðmætum af heimilinu áður en kæmi að hinu dótinu.

Hvað segir það okkur þá um þær hugmyndir sem blunda að baki sögunni, skilaboðin sem við getum mögulega lesið á milli línanna um mannlegt líf og það sem er eftirsóknarvert í augum Guðs? Getur það mögulega verið að það sem er ófullkomið sé í raun undirstaða ósvikinna tengsla? Mögulega hefur hið fullkomna eitthvert aðdráttarafl, en það sem raunverulega tengir okkur saman er einmitt það sem er það ekki, hefur einhverja annmarka, galla.

Alveg eins og lykkjuföllin í handavinnuverkefnum barna minna, skakkir stafirnir sem eru brenndir á spýtuna, já ég er meir að segja með pennastokk sem ég setti saman árið 1979 á borðinu mínu og myndi seint teljast nein völunarsmíði.

Þegar ég gef hjón saman bið ég þau gjarnan um að senda mér einhvern texta sem lýsir hinu. Ég vitna svo til þeirra orða í sjálfri hjónavígsluathöfninni. Oftar en ekki má lesa um það hvernig þau mæta takmörkum hvors annars. Það sem gerir fólk fallegt er ekki að því takist alltaf að gera rétt, heldur að það geti horfst í augu við eigin bresti, viðurkennt mistök sín og mætt öðrum af sama skilningi. Við verðum ekki ástfangin af fullkomnun. Við fellum fremur hug til fólks þegar það leyfir okkur sjálfum að vera ófullkomin og þegar við samþykkjum ófullkomleika þess.

Þegar við reynum að fela mennsku okkar og veikleika fyrir öðrum, ber það vott um það að við séum óttaslegin, sjálfsmynd okkar mætti vera traustari. Um leið búum við til ósanngjarna og óréttláta staðla fyrir aðra.


Felum ekki mistökin

Og gleymum því ekki að þessir breysku menn sem þarna fengu hið óleysanlega verkefni áttu eftir að verða leiðtogar, móta heiminn og breyta öllum forsendum. Þar ganga þeir á undan fyrir okkur öll sem fetum í þeirra fótspor. Það er ekki okkar að vita allt eða geta allt, heldur þvert á móti þora að sýna veikleika okkar, viðurkenna mistök og segja hreinskilnislega: „Ég veit þetta ekki, ég þarf hjálp.“

Slík hreinskilni skapar traust á milli fólks og hvetur fólk til að vinna saman í stað þess að fela eigin mistök.

Já, ellefu stóðu þeir uppi á fjallinu. Ellefu menn sem höfðu gert mistök, brugðist trausti og reynst óttaslegnir þegar mest reyndi á. Og enn segir guðspjallið að sumir þeirra hafi verið í vafa. Samt fól Jesús þessum mönnum að fara út um allan heim og gera allar þjóðir að lærisveinum.

Kannski er það einmitt þetta sem við þurfum að heyra á kristniboðsdegi. Við þurfum ekki að vera fullkomin til þess að geta verið öðrum til blessunar. Við þurfum ekki að kunna svör við öllum spurningum eða hafa sigrast á öllum veikleikum okkar.


Aldrei ein

Kristin trú er ekki boðskapur um fólk sem hefur tekist að fullkomna sjálft sig. Hún er fagnaðarerindi um Guð sem mætir manninum eins og hann er, reisir hann við og gefur honum nýtt upphaf. Og einmitt þetta erum við kölluð til að boða. Ekki eigin ágæti, ekki eigin fullkomnun, heldur kærleika Guðs sem er okkur stærri.

Þessir ellefu á fjallinu höfðu litlar forsendur til þess að breyta heiminum. En þeir voru ekki einir. Og það er kannski það mikilvægasta í allri þessari sögu. Jesús sagði ekki: Farið, þegar þið eruð orðin nógu góð. Hann sagði: Farið. Og síðan bætti hann við fyrirheitinu sem hefur borið kirkjuna í gegnum aldirnar:

„Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.“

Það er fyrirheit kristniboðsins. Og það er fyrirheit okkar allra.