Þú ert Kristur....
Predikun á 5. sunnudegi eftir þrenningarhátíð
Flutt í Neskirkju þann 5. júlí 2026
Textar: Jer 15.19-21, Post 26.12-20 og Matt 16.13-26
Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi. Amen.
Mörg fyrirtæki og félagasamstök sem hafa náð árangri á undanförnum áratugum eiga það sameiginlegt að vera drifin áfram af ákveðnum tilgangi, þau eru „purposedriven“ eða tilgangsdrifin. Þau sem leiða þessi fyrirtæki eða félög hafa skýra sýn á grunngildi félagsins og tilgang þess. Sá tilgangur er hafður að leiðarljósi í öllu því sem þau taka sér fyrir hendur. Læknar án landamæra eru dæmi um þannig félagasamtök. Þau starfa víða um heimog veita milljónum manna nauðsynlega læknisþjónustu árlega.Tilgangurlækna án landamæra er að lina þjáningar náungans og rétta hjálparhönd. Sænski húsgagnaframleiðandinn IKEA er tilgangsdrifið fyrirtæki, með þann skýra tilgang að gera hversdagslegt líf fólks betra. Það þarf líklega ekki að telja upp hvað IKEA gerir, við verðum sennilega flest vör við það með því að líta á húsgögnin heima hjá okkur. Að vera tilgangsdrifin merkir að vita hvað maður stendur fyrir.
Kirkjan er á sinn hátt tilgangsdrifin hreyfing, en sá tilgangur á það til að verða æði óljós oft og tíðum.Kirkjan okkar með sitt umfangsmikla stjórnkerfi biskupa, kirkjuþing, prófastsdæmi, prestaköll, sóknarnefndir, sóknir og sitt flókna samband við ríkið missir oft sjónar á tilgangi sínum. Umræður um skipulag kirkjunnar eru mikilvægar og kirkjan verður að hafa gott skipulag sem styður við tilgang hennar. Kirkjan á fallegar byggingar um allt land sem sóknir landsins reistu og viðhalda með það að leiðarljósi að styðja við tilgang hennar.En hver er sá tilgangur, hver er kjarni kirkjunnar og hennar starfs? Er það gott skipulag, fallegar byggingar eða orgel?
Textarnir sem við lásum í dag leiða okkur að tilgangi kirkjunnar. Jeremía spámaður fær skýr skilaboð um að hann eigi að flytja fólki boðskap sem er einhvers virði, hefur eitthvað gildi: „... Ef þú talar þungvæg orð [...] skaltu vera munnur minn.“ Í guðspjalli dagsins brýnir Jesús fyrir lærisveinum sínum hver tilgangur kirkjunnar er í raun og veru og spyr þá: „Hvern segja menn mig vera?“ Svörin eru af öllum toga. Sumir segja að hann sé Jóhannes skírari, aðrir Elía og enn aðrir Jeremía eða einn af spámönnunum. Strax í upphafi var fjöldi hugmynda um það hver Jesús gæti raunverulega verið, strax í upphafi reyndi fólk að skilgreina Jesú á annan hátt en hann sjálfur gerði.
Svar lærisveinanna er ekkert ólíkt því sem ég nefndi áðan – hver er tilgangur kirkjunnar? Sumir segja að það sé tilgangur hennar að viðhalda fallegum húsum, að vera með gott skipulag og að sinna athöfnum. Til að leiða lærisveina sína áfram spyrJesús: „Hvern segið þið mig vera?“ Og Pétur svarar: „Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs.“
Pétur svarar rétt og honum hlýtur að hafa liðið frábærlega því Jesús segir við hann: „Þú ert Pétur, og á þessum kletti mun ég byggja kirkju mína[...]ég mun fá þér lykla himnaríkis.“ Þetta er engin smá upphefð og það er auðvelt að sjá Pétur fyrir sér brosandi út að eyrum yfir þessu öllu. En stuttu síðar er Pétur rifinn aftur niður á jörðina. Hann svaraði vissulega rétt, en þegar Jesús talar um það sem átti eftir að koma fyrir hann ofbauð Pétri. Hann tekur því Jesú á eintal og skammar hann fyrir að tala svona: „Pétur tók hann á einmæli og fór að átelja hann,“ segir í guðspjallinu. „Guð forði þér frá því, Drottinn, þetta má aldrei fyrir þig koma.“ Jesús svaraði Pétri ákveðið: „Vík frá mér, Satan.Þú hugsar ekki um það sem Guðs er, heldur það sem manna er.“
Pétur hélt kannski að vegna þess að hann hafði svarað rétt væri hann miklu klárari en allir aðrir, að hann væri þá nógu klár til að segja Jesú að hann hefði rangt fyrir sér.Svar Péturs var svar trúarinnar, ekki þekkingarinnar, ekki svar eigin visku, heldur trúar. Pétur treysti Jesú, hann vildi treysta orðum hans. En það er stutt á milli trausts og vantrausts, trúar og vantrúar, því þótt Pétur vissi hver tilgangurinn væri þá vildi hann sína útgáfu, hann vildi Krist sem sigraði, ekki Krist sem dó, ekki Krist sem fyrirgefur syndir og deyr fyrir aðra. Pétur vildi aðra útgáfu af Jesú og hann er ekki einn í því. Stundum viljum við okkar eigin útgáfu af Kristi, stundum segir fólk „minn Guð“ er svona og svona. Við viljum þægan og praktískan „Krist“ sem passar inn í stofuna okkar eins og sófaborð frá IKEA, áreynslulaust, vandræðalaust. En sá Jesús sem við kynnumst í guðspjöllunum lætur ekki smætta sig niður í þægilegan Krist.
Að trúa er nefnilega ekki bara að segja réttu orðin, heldur að leyfa trúnni að móta tilgang okkar og líf.Snúum okkur aftur að spámanninumJeremía. Hann fær það hlutverk að tala þungvæg orð en ekki léttvæg, sem er ekki alltaf skemmtilegt. En það er hlutverk kirkjunnar að miðla fagnaðarerindinu, góðu fréttunum um Jesú. Hún á ekki bara að segja það sem fólk vill heyra. Við heyrðum líka um Pál postula áðan, á þessum tímapunkti var hann kominn í vandræði gagnvart yfirvöldum fyrir það að boða fagnaðarerindið um Jesú. Við lásum málsvörn Páls frammi fyrir Agrippakonungi í dag.Þar útskýrði Páll hvers vegna hann væri að segja frá Jesú. Páll var sjálfur brotinn maður með margt á samviskunni.Hann hafði áður viljað þagga niður í fylgjendum Jesú og brjóta kirkjuna á bak aftur. En Kristur mætti Páli,fyrirgaf honum og sendi hann af stað. Jesús valdi ekki Pál til að vera sendiboði sinn vegna þess að Páll hafði rétt fyrir sér eða vegna þess að hann væri fullkominn. Svo sannarlega ekki.Páll hafði farið rangt að og meitt aðra en eins og svo oft áður mætti Jesús Páli í myrkrinu og beindi honum til ljóssins, til sín. Jesús reisti hann við, gaf honum nýja sýn á lífið og sendi hann af stað út í heiminn til að boða öllu fólki kærleika Guðs og fyrirgefningu syndanna.
Kirkjan er tilgangsdrifin, en ekki eins og fyrirtæki sem finnur sér fallegt slagorð. Tilgangur kirkjunnar er ekki að verða vinsæl og þægileg. Tilgangur kirkjunnar er Kristur sjálfur, að játast honum, fylgja honum, boða fyrirgefningu syndanna og rétta náunganum hjálparhönd í hans nafni.
Þess vegna er spurning Jesúsvo mikilvæg enn í dag fyrir okkur:
„En þið, hvern segið þið mig vera?“
Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda, svo sem var í upphafi, er og verður um aldir alda. Amen.
Rísið úr sætum og takið postullegri blessun: Náðin Drottins vors Jesú Krists, kærleiki Guðs og samfélag Heilags anda sé með yður öllum. Amen.